Skilmálar
Skilmálar um kaup, afhendingu og vöruskil
1. Almennir skilmálar
Þessir skilmálar gilda um öll kaup á vöru og þjónustu frá VivaBoom.
Með því að leggja inn pöntun samþykkir viðskiptavinur skilmálana og staðfestir að hafa kynnt sér upplýsingar um verð, vörulýsingu og greiðsluskilmála.
Seljandi
VivaBoom
Saurbær, 371 Skriðuland
VSK-númer: 160569
2. Verð og greiðslur
Öll verð eru birt í íslenskum krónum (ISK) og innihalda virðisaukaskatt þar sem við á.
Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt (Verifone) samkvæmt skilmálum aðila.
Pöntunin er staðfest þegar greiðsla hefur borist.
3. Afhending
Við bjóðum afhendingu með Dropp eða öðrum flutningsaðila samkvæmt framboði.
Pantanir eru yfirleitt afgreiddar innan 1–3 virkra daga, en sendingartími getur verið mismunandi eftir aðstæðum.
Við sendum staðfestingu og rekjanúmer þegar pöntun fer af stað.
4. Vöruskil & endurgreiðslur
Samkvæmt lögum um neytendasamninga (lög nr. 16/2016) hefur þú rétt til að hætta við kaupin innan 14 daga frá móttöku vöru, án þess að tilgreina ástæðu. Uppsögn þarf að berast okkur skriflega (t.d. í tölvupósti) innan þessa frests — þú getur notað staðlað uppsagnareyðublað eða senda okkur sambærilega yfirlýsingu.
Eftir að hafa tilkynnt um uppsögn hefur þú 14 daga til viðbótar til að senda vöruna til baka. Varan skal vera óopnuð, ónotuð og óskemmd.
Undanþágur frá skilarétti (skv. 16. gr. laga nr. 16/2016):
- • Vörur sem hafa verið opnaðar, notaðar eða geymdar rangt
- • Ferskar eða fljótskemmandi vörur (t.d. sjávarmosi gel) sem ekki er hægt að selja aftur af hreinlætis- og heilbrigðisástæðum eftir að innsigli hefur verið rofið
Endurgreiðsla er framkvæmd innan 7 daga frá því að við staðfestum móttöku skilavöru.
Viðskiptavinur ber kostnað við skil nema um galla eða mistök í afhendingu sé að ræða.
5. Áskriftarskilmálar
Ef áskrift er valin:
- • Við skráningu er einungis kortastaðfesting framkvæmd, ekkert er tekið af kortinu þegar áskrift hefst
- • Fyrsta greiðsla fer fram 1. næsta mánaðar og síðan mánaðarlega þar á eftir
- • Sending fer fram á fyrsta mánudegi hvers mánaðar eftir greiðslu
- • Lágmarkstími eru 2 greiddar áskriftarlotur áður en hægt er að segja upp af okkar hálfu — þetta hefur þó ekki áhrif á 14 daga skilarétt þinn, sjá að neðan
- • Greiðslukort er skuldfært sjálfkrafa 1. hvers mánaðar mistekst greiðsla er reynt aftur 2. og 3.
- • Ef greiðsla mistekst þrisvar í röð verður áskrift sett í gjaldfallna stöðu og sending fellur niður þann mánuð
- • Breytingar á áskrift má gera í gegnum stillingar síðu eða í gegnum tölvupóst
Fjarsölureglugerð — réttur til að hætta við áskrift
- • Þú hefur 14 daga rétt til að hætta við áskriftina samkvæmt lögum um neytendasamninga (lög nr. 16/2016). Fyrir endurteknar sendingar hefst þessi 14 daga frestur þegar fyrsta sendingin berst
- • Til að áskrift stöðvist fyrir næstu greiðslu (1. hvers mánaðar) þarf uppsögn að berast áður en sá dagur rennur upp
- • Uppsögn er jafn einföld og skráning — hægt er að segja upp á netinu í gegnum stillingar síðu, ekki aðeins með tölvupósti
6. Gæði og geymsla vara
Allar vörur eru unnar úr náttúrulegum hráefnum.
Við mælum með að fylgja geymslu- og notkunarleiðbeiningum sem birtar eru á vörusíðu.
Vara sem geymd er rangt (t.d. ókæld sjávarmosi gel) fellur ekki undir ábyrgð eða skilarétt.
7. Gallaðar eða rangar vörur
Ef vara reynist gölluð eða röng við afhendingu biðjum við þig vinsamlegast um að hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er, helst innan 48 klukkustunda, með myndum og lýsingu á gallanum. Þessi tímafrestur takmarkar ekki lögbundinn rétt þinn.
Samkvæmt lögum um lausafjárkaup (lög nr. 48/2003) hefur þú rétt til að kvarta yfir galla í allt að 2 ár frá afhendingu. Kvörtun sem berst innan 2 mánaða frá því að galli uppgötvast telst ávallt nógu snemma fram komin.
Úrræði vegna galla:
Þú átt rétt á að velja á milli viðgerðar, nýrrar vöru, afsláttar af verði eða riftunar kaupa, í samræmi við reglur laga nr. 48/2003 um lausafjárkaup. Við bjóðum að jafnaði nýja vöru, inneign eða endurgreiðslu, en lögbundinn réttur þinn gengur framar.
8. Persónuvernd
Við vinnum með persónuupplýsingar í samræmi við GDPR og íslensk persónuverndarlög.
Upplýsingar eru einungis notaðar til greiðslu, afhendingar og þjónustu.
Við deilum þeim ekki með þriðja aðila nema vegna lögbundinnar skyldu eða þjónustuaðila (t.d. greiðslugátt, Dropp sendingar).
Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga, þ.m.t. hver ber ábyrgð á vinnslunni, hvaða lagagrundvöllur er notaður, hversu lengi gögn eru geymd og hvaða réttindi þú hefur, er að finna í persónuverndarstefnu okkar.
9. Lög og ágreiningsmál
Um þessa skilmála og viðskipti við VivaBoom gilda íslensk lög.
Ef ágreiningur kemur upp sem ekki tekst að leysa í beinum samskiptum getur þú beint kvörtun til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (neytendastofa.is).
10. Samskipti og þjónusta
Ef upp kemur spurning, vandamál eða ábending:
vivaboom@vivaboom.isSkilmálar uppfærðir síðast: